Flettingar í dag: 36
Gestir í dag: 22
Flettingar í gær: 69
Gestir í gær: 24
Samtals flettingar: 96661
Samtals gestir: 28338
Tölur uppfærðar: 28.1.2012 13:24:25
04.12.2011 15:02
Ótitlað
Höfnin hjá okkur í dag það er verið að lesta Reinu en hún tekur frystarsíldarafurðir. Í morgun kom svo Green Tromsö með um 800 tonn af vörum frá Hornafirði og lestar þær yfir í Green Crystal. Hornfirðingar neita núna að taka skip yfir 100 metra löng inn í ósinn hjá sér og þess vegna eru þau að lesta á milli hér. Kv. Guji.
Skrifað af Guji
03.12.2011 12:50
Ótitlað
Svona var útsýnið í höfninni hjá okkur Norðfirðingum í hádeginu í dag. Það er komið nóg af snjónum í bili ég held að við getum öll verið sammála um það.
Skrifað af Guji
29.11.2011 19:53
Ótitlað
Björgvin EA landaði um 90 tonnum bolfiski hér í dag aðalega þorski oog fer allur aflinn í vinnslu hjá Samherja á Akureyri og Dalvík. Bjartur NK landaði líka í dag um 60 tonnum af bolfiski sem fer norður til Samherja líka. Það er eitthvað bilað í vél hjá Bjarti en það er ekki alveg vitað hvað það er.
Erika landaði um 500 tonnum af loðnu í dag og einnig landaði Börkur 200 tonnum. Það er bræla á loðnumiðunum svo að skipin koma til með að liggja í höfn næstu daga. Vilhelm EA er svo væntanlegur í nótt með síld úr Breiðarfirðinum sem fer í frystigeimsluna hjá SVN.
Kv. Guji.
Skrifað af Guji
